Þinn stafræni starfsmaður

Þú þarft ekki að kunna á kerfin. Eva vinnur í þeim fyrir þig.

Hún býr til auglýsingaherferðir frá grunni, svarar tölvupóstum og skilaboðum, býr til og birtir efni. Frá markaðssetningu og samskiptum yfir í bókhald, skattskil og lykiltölur.

Segðu Evu hvað þarf að gera. Hún vinnur allan sólarhringinn.

Ekkert fer út án þess að þú segir já.

Eva, stafrænn starfsmaður, við skrifborðið
Vinnur í kerfunum sem þú notar nú þegar
Aðgengileg allan sólarhringinn
Lærir reksturinn þinn og tóninn þinn
Spyr alltaf áður en hún framkvæmir
Eva við hljóðnemann, tilbúin í verkefni dagsins Unnið af Evu
Svona vinnur Eva

Þú felur henni verkið. Hún skilar því kláruðu.

1

Þú tengir kerfin þín í upphafi

Facebook, Instagram, tölvupóstinn, dagatalið og vefinn. Eva les sig til um reksturinn þinn og byrjar að fylgjast með.

2

Hún undirbýr og leggur til

Færslur, svör, herferðir og lagfæringar bíða samþykkis þíns. Þú sérð textann og af hverju hún leggur hann til.

3

Þú segir já, hún klárar

Samþykkja, breyta eða hafna. Breytir þú textanum lærir hún af því og næsta tillaga hljómar meira eins og þú.

Hvað hún tekur að sér

Eitt hlutverk í einu, eða öll í senn.

Eva tekur að sér markaðsmálin, póstinn, dagatalið og vefinn. Þú velur hvað hún fær að gera.

Samfélagsmiðlar

Þú skrifar færslu einu sinni og Eva birtir hana á Facebook, Instagram, LinkedIn og Google. Hún getur líka skipulagt vikuna og lagt til þrjár færslur sem hljóma eins og vefsíðan þín.

Auglýsingar

Eva býr til Meta-herferðir frá grunni og leggur þær fyrir þig í drögum. Hún sækir tölurnar, síðustu 28 daga, og segir þér á mannamáli hvað virkar og hvað mætti gera betur.

Tölvupóstur og skilaboð

Hún les skilaboðin sem berast á Messenger, Instagram og í tölvupósti og semur drög að svari við hverju þeirra. Eva lærir tóninn þinn betur með hverju svari.

Vefurinn

Leitarvélabestun: hún skannar vefsíðuna, gefur henni einkunn og lagar það sem má laga svo hún finnist betur á Google, til dæmis lýsingar sem vantar. Hún fylgist með umferðinni og setur upp mælingartækin frá Meta og Google fyrir þig.

Dagatalið

Eva les fundarbeiðnir úr póstinum og stingur upp á þeim á dagatalinu. Staðfestir þú, sendir hún staðfestingu og skráir fundinn.

Bókhald og skattar

Eva útskýrir á mannamáli hvað þarf að skila og hvenær: virðisaukann, staðgreiðsluna, tryggingagjaldið og ársreikninginn. Almenn leiðsögn, ekki skattaráðgjöf.

Á hverjum morgni

Dagurinn byrjar á stöðunni frá Evu.

Um sexleytið á hverjum morgni skrifar Eva stutta stöðu: hvað gerðist, hvað bíður og ein tillaga um hvað sé skynsamlegt að gera næst. Hún bíður þín þegar þú opnar mælaborðið.

Þú þarft ekki að leita að neinu. Það sem skiptir máli er á einum stað, á mannamáli.

MorgunsamantektÞri · 06:02

Góðan daginn. Í nótt svaraði ég fjórum fyrirspurnum á Messenger og tveimur tölvupóstum. Öll svörin bíða þín til samþykkis.

  • Herferðin frá því í gær er komin með 38 smelli og kostar 112 kr á smell.
  • Tvær færslur fara út í dag kl. 12, Facebook og Instagram.
  • Fundarbeiðni frá Söru bíður staðfestingar, fimmtudag kl. 10.
Tillaga dagsinsFærslan um opnunartímann fékk þrefalt fleiri viðbrögð en meðaltalið. Ég legg til aðra í sama tón fyrir föstudag, drögin eru tilbúin.
Dæmi um morgunsamantekt
Hún vinnur á tveimur stöðum

Í mælaborðinu skipuleggur hún og sjálfvirknivæðir. Í vafranum vinnur hún verkin.

Mælaborðið

Hér skrifar Eva og leggur til. Innhólf með svarsdrögum, birtingar, morgunsamantektin, það sem bíður samþykkis og minnið hennar um reksturinn þinn. Þú talar við hana í spjallinu eins og við samstarfsfélaga.

Chrome-viðbótin

Hér gerir Eva hlutina sjálf: opnar síður, fyllir út form, setur upp herferðir og lagar vefi. Hún vinnur í kerfunum sem þú notar nú þegar, og þú fylgist með.

Þjónustuleiðir

Ráða Evu í eitt hlutverk, eða í allt.

Mánaðaráskrift, öll verð með virðisaukaskatti.

Eitt hlutverk

Herferðagerð

8.800 kr. /mán.

Einfaldasta leiðin til að kynnast Evu: láttu hana byrja á herferðunum.

  • Eva býr til Meta-herferðir frá grunni og leggur þær fyrir þig í drögum
  • Les auglýsingatölurnar vikulega og segir hvað virkar og hvað mætti gera betur
  • Evu-spjallið fylgir með allan mánuðinn
Byrja á herferðunum
Áskrift · í þjálfun

Innsýn

6.900 kr. /mán.

Innhólfið og dagatalið, Eva sér um samskiptin.

  • Tölvupóstur, Messenger og Instagram á einum stað, með svarsdrögum í þínum tón
  • Dagatalið: fundarbeiðnir úr póstinum staðfestar með einum smelli
  • Ekkert fer út án þess að þú segir já
Í þjálfun

Opnar bráðlega. Skráðu þig á fréttabréfið og þú færð að vita þegar hún er tilbúin.

Áskrift · í þjálfun

Yfirsýn

43.100 kr. /mán.

Allt sem Eva gerir, og Chrome-viðbótin með.

  • Allt í Innsýn
  • Samfélagsmiðlar, auglýsingar, vefurinn og leitarvélabestun, bókhald og skattar
  • Chrome-viðbótin: Eva vinnur verkin í vafranum
  • Sjálfvirknin gengur án afláts, alla daga
Í þjálfun

Opnar bráðlega. Skráðu þig á fréttabréfið og þú færð að vita þegar hún er tilbúin.

Sjá allar þjónustuleiðir og inneign

Fréttabréf Evu

Fáðu að vita þegar Eva lærir eitthvað nýtt.

Stutt bréf þegar Eva fær nýtt hlutverk, ný tenging bætist við eða tilboð er í gangi. Ekki oftar en einu sinni í mánuði, og þú getur afskráð þig hvenær sem er.

Með skráningu samþykkir þú persónuverndarstefnu Evu Innsýnar.

Viltu ráða Evu í fyrsta hlutverkið?

Stofnaðu aðgang, gefðu Evu vefsíðuna þína og láttu hana lesa sig til um reksturinn. Fáðu henni svo eitt verk. Það tekur nokkrar mínútur.